|
Könnun
Hvenær á ég að flytja austur aftur?
STRAX!
0 atkvæði
Þú mátt nú alveg koma bara um áramótin
0 atkvæði
Komdu bara næsta vor eins og planið var
3 atkvæði
Slepptu því bara að koma aftur, enginn vill hafa þig!
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 4
RHODOS
Fyrir 459 dögum
Jólafríið byrjar! :)
Allir nákomnir mér sem eiga síðu!
|
05.11.2008 10:03:40 / audna
Það er ekkert smá sem að tíminn líður hratt frá manni. Mér finnst ég nýkomin hingað á Hvanneyri, og áður en við vitum af verður komið jólafrí og ég fer að halda jólin á Egilsstöðum. Vá hvað það verður skrýtið, maður verður í siðmenningu yfir jólin og stressið á sjálfsagt eftir að minnka um helming bara við það að þurfa ekki að fara í Egilsstaði á Þorláksmessu og klára jólainnkaupin.  OOOOOg, loksins þarf ég ekki að vera edrú alltaf þegar eitthvað er að gerast svo að ég geti keyrt heim, um jólin geta vinir mínir bara farið að koma í heimsókn til mín og skutlast fyrir mig (kominn tími til að ég hætti því fyrir aðra  ) Allavega, ég er farin svo langt fram úr mér.... Mánuður er eftir af skólanum fram að jólum eða jólaprófum, þá byrjar stuðið. Ég er nefnilega sú manneskja sem lærir hálfan dag fyrir próf og kem mér svo í prófið, alls ekki viss um að ná því...  Þetta er svakalegt ástand, ef einhver er til í að hjálpa mér að læra aðeins meira í kringum prófin, þá tek ég við allri hjálp!  En margt að gera næstu daga, mikil verkefnavinna í dag því að auðvitað gat ég ekki gert það um helgina eða í gær...  en Nýdönsk er að spila á barnum hérna á Hvanneyri annað kvöld og svo er ég að fara á ABBA show með íðilfögrum meyjum á laugardaginn og ég hlakka svo til að sjá þetta, upplifa eitthvað svona. Því aldrei hef ég fengið löngun til að fara á einhverja tónleika með einhverjum frægum eða eitthvað, þannig að þetta er bara af því góða  Jæja, kannski ég fari að fylgjast aðeins með, gott fyrir jólaprófin  Auðna fræbúðingur biður að heilsa
»
27.09.2008 17:33:24 / audna
Þessir dagar eru ægilega skrýtnir. Getur einhver sagt mér hvað er í gangi? Dagarnir hjá mér líða eins og í einhverju þunglyndi, ótrúlegt að þetta sé svona. Allavega, ég er komin á Hvanneyri og er búið að vera mjög gaman. Ég er búin að fullklára "æðislega" plöntusafnið mitt og ég er búin að læra nokkurn veginn hvernig á að plægja. Á fimmtudaginn fórum við í ferðalag (1. og 2. bekkur í búfræði), við fórum um Snæfellsnes og skoðuðum 4 bæi. Svo þegar við komum heim aftur á Hvanneyri, þá hellti maður í sig bjór, sturtaði sig og fór á Granagrill sem var haldið í íþróttahúsinu hérna. Þegar þar var allt búið, þá drifum við okkur á barinn og þaðan svo í eftirpartý. Ég myndi gefa ykkur meiri upplýsingar ef ég hefði þær sjálf. Hefði kannski aðeins mátt bíða að fara í bjórinn þarna eftir ferðina...  En gaman var samt og á föstudaginn voru bara 2 tímar þannig að maður lifði þetta af. Helgin hjá mér er að fara í slökun og rólegheit, sem er mjög gott. Margrét er að koma að hitta mig á eftir og ég er að fara að keyra hana um í Borgarnesi held ég... En núna er ég að hugsa um að hætta í tölvunni, ég hlýt að fara að verða að tölvu sjálf, þetta er ekki eðlileg tölvunotkun! Auðna tilvonandi búfræðingur kveður að sinni
»
12.09.2008 12:42:59 / audna
Margt hefur drifið á daga mína síðan ég skrifaði hér síðast. Þriggja mánaða verknám er búið (sem ég var alveg viss um að ég myndi aldrei ná að klára), ég lenti í bílslysi og ég fór að vinna fyrir vestan. Nánar tiltekið á Hótel Eddu á Laugum í Sælingsdal! :þ En lífið er annars búið að vera mjög gott við mig þessa dagana. Ég hlakka óskaplega mikið til að fara á Hvanneyri aftur eftir viku og hitta allt fólkið aftur!  Það verður geggjað að hitta alla. Þá fyrst mun ég hafa tíma til að byrja að blogga aftur eitthvað að ráði!  En núna þarf ég víst að fara að leita að einhverju dóti handa systur minni sem er flutt í borg óttans! Ég skal gera mitt besta að fara að halda þessu bloggi uppi aftur!  Þangað til næst Auðna fræbúðingur!
»
20.02.2008 00:03:26 / audna
Jæja, það hefur svo sem bæði og verið lítið að gera og mikið verið að gera svona upp á síðkastið.
Síðustu helgi var eytt í búfjárræktarferð í Eyjafirðinum og sjaldan sem
ég hef skemmt mér svona vel. Margir bæir voru skoðaðir, hesta, kindur
og kýr voru skoðaðar þó að mest hafi verið lagt upp úr hestunum. En
maður lætur það ekki á sig hafa heldur var maður þarna til að skemmta
sér en ekki að væla. Á Saurbæ var greinilega búið að undirbúa sig til
að taka á móti okkur því að það var búið að fjárfesta í 5 kössum af
bjór handa okkur og það vakti mikla lukku.
Þessi ferð náttúrulega byrjaði á því að fá sér bauk í hádeginu á
föstudaginn þó að maður hafi verið að undirbúa sig undir hana á
fimmtudeginum!
En á föstudagskvöldinu var farið á djammið á Akureyri sem og á
laugardeginum. En síðasta heimsókn okkar á laugardeginum var varið í
bruggverksmiðju Víkíngs á Akureyri, þar fengum við ótakmarkaðan bjór um
leið og verksmiðjan var skoðuð. Það getur nú ekki verið neitt grín að
fá 40 manns í heimsókn og hafa ótakmarkaðan bjór handa þeim. Hins vegar
tókst okkur að klára kútinn sem átti að duga handa okkur... 
En þessi vika er til að drepa okkur í skólanum. Mikið af verkefnum,
mikið af prófum og enginn okkar er búinn að undirbúa sig undir neitt.
Það er ótrúlegt að vera í skóla og eiga að læra, en maður kemur sér
ekki í það fyrr en daginn fyrir próf eða svo. Ætli það séu til lyf við
þessu? Eitthvað sem fær mann til að langa til að læra heima? Maður
hefði ekki haldið það, maður á náttúrulega að hafa þetta innbyggt...
En þetta er rosa erfið vika og helginni verður vonandi eytt bara fyrir
framan námsbækur til að ná einhverju upp í þessu námi. Fengum ekki
skemmtilega skammarræðu frá kennara sem við bjuggumst alls ekki við að
myndi fara að skamma okkur, en miðað við frammistöðu okkar á prófinu
hjá honum, þá höfðum við gott af því að vera skömmuð svolítið rækilega.
Svo til að toppa allt saman, þá þarf ég að undirbúa utanlandsferð í
sumar, allt í einu er ég komin líka á fullt í einhverju félagslífi
hérna í skólanum, er að plana þetta og fara á fundi þarna og eitthvað.
Ég veit ekki hvað gerðist.  En ég meina, ég er nú svo töff að allir
vilja fá að hafa mig með í öllu.
Hey, svo að ég gleymi nú ekki einu...
Um helgina fórum við á Dalton í Vélsmiðjunni á Akureyri og ég ætlaði að
vera geðveikt nett og bað um óskalag, þeir spiluðu það sem síðasta lag
fyrir pásu og Þóranna kallaði til söngvarans að ég gæti sungið þannig
að ég dreif mig upp á svið til að sýna það og sanna! 
Sumir höndla bara ekki þegar ég er svalari en þeir! Svo þegar ég ætla
að taka sveifluna með söngvaranum, þá lætur hann sig hverfa og ég verð
að láta mig hafa það að standa ein á sviðinu með hljómsveitinni í smá
tíma, en það leið ekki langur tími þangað til að Maggi var líka kominn
upp á svið til að ég fengi nú ekki alla athyglina!
Sumir höndla bara ekki þegar ég fæ meiri athygli en þeir! 
En þannig hefur þetta nú verið hjá mér upp á síðkastið...
En ef þið vitið af einhverju sem ég er að gleyma, þá endilega látið mig vita og ég segi frá því hér eins og skot!
Auðna fræbúðingur biður að heilsa
»
20.02.2008 00:03:13 / audna
Jæja, það hefur svo sem bæði og verið lítið að gera og mikið verið að gera svona upp á síðkastið.
Síðustu helgi var eytt í búfjárræktarferð í Eyjafirðinum og sjaldan sem
ég hef skemmt mér svona vel. Margir bæir voru skoðaðir, hesta, kindur
og kýr voru skoðaðar þó að mest hafi verið lagt upp úr hestunum. En
maður lætur það ekki á sig hafa heldur var maður þarna til að skemmta
sér en ekki að væla. Á Saurbæ var greinilega búið að undirbúa sig til
að taka á móti okkur því að það var búið að fjárfesta í 5 kössum af
bjór handa okkur og það vakti mikla lukku.
Þessi ferð náttúrulega byrjaði á því að fá sér bauk í hádeginu á
föstudaginn þó að maður hafi verið að undirbúa sig undir hana á
fimmtudeginum!
En á föstudagskvöldinu var farið á djammið á Akureyri sem og á
laugardeginum. En síðasta heimsókn okkar á laugardeginum var varið í
bruggverksmiðju Víkíngs á Akureyri, þar fengum við ótakmarkaðan bjór um
leið og verksmiðjan var skoðuð. Það getur nú ekki verið neitt grín að
fá 40 manns í heimsókn og hafa ótakmarkaðan bjór handa þeim. Hins vegar
tókst okkur að klára kútinn sem átti að duga handa okkur... 
En þessi vika er til að drepa okkur í skólanum. Mikið af verkefnum,
mikið af prófum og enginn okkar er búinn að undirbúa sig undir neitt.
Það er ótrúlegt að vera í skóla og eiga að læra, en maður kemur sér
ekki í það fyrr en daginn fyrir próf eða svo. Ætli það séu til lyf við
þessu? Eitthvað sem fær mann til að langa til að læra heima? Maður
hefði ekki haldið það, maður á náttúrulega að hafa þetta innbyggt...
En þetta er rosa erfið vika og helginni verður vonandi eytt bara fyrir
framan námsbækur til að ná einhverju upp í þessu námi. Fengum ekki
skemmtilega skammarræðu frá kennara sem við bjuggumst alls ekki við að
myndi fara að skamma okkur, en miðað við frammistöðu okkar á prófinu
hjá honum, þá höfðum við gott af því að vera skömmuð svolítið rækilega.
Svo til að toppa allt saman, þá þarf ég að undirbúa utanlandsferð í
sumar, allt í einu er ég komin líka á fullt í einhverju félagslífi
hérna í skólanum, er að plana þetta og fara á fundi þarna og eitthvað.
Ég veit ekki hvað gerðist.  En ég meina, ég er nú svo töff að allir
vilja fá að hafa mig með í öllu.
Hey, svo að ég gleymi nú ekki einu...
Um helgina fórum við á Dalton í Vélsmiðjunni á Akureyri og ég ætlaði að
vera geðveikt nett og bað um óskalag, þeir spiluðu það sem síðasta lag
fyrir pásu og Þóranna kallaði til söngvarans að ég gæti sungið þannig
að ég dreif mig upp á svið til að sýna það og sanna! 
Sumir höndla bara ekki þegar ég er svalari en þeir! Svo þegar ég ætla
að taka sveifluna með söngvaranum, þá lætur hann sig hverfa og ég verð
að láta mig hafa það að standa ein á sviðinu með hljómsveitinni í smá
tíma, en það leið ekki langur tími þangað til að Maggi var líka kominn
upp á svið til að ég fengi nú ekki alla athyglina! 
Sumir höndla bara ekki þegar ég fæ meiri athygli en þeir! 
En þannig hefur þetta nú verið hjá mér upp á síðkastið...
En ef þið vitið af einhverju sem ég er að gleyma, þá endilega látið mig vita og ég segi frá því hér eins og skot!
Auðna fræbúðingur biður að heilsa
»
25.01.2008 10:21:34 / audna
Já, ég er að segja ykkur það að þessi vika er búin að vera mjög skemmtileg og fróðleg! Ég er búin að eyða vikunni aðallega með strákunum því ég er búin að vera að skipuleggja afmælispartý með þremur sem eiga afmæli í janúar og til dæmis varð Jónki tvítugur á mánudaginn og er hann búinn að fara í ríkið alla daga vikunnar síðan þá!  En í gær var eighties þema á barnum og vorum við bekkjarfélagarnir langflottastir á barnum! Við erum ekkert að grínast, strákarnir málaðir og með hárið út í loftið, og við stelpurnar með túperað hár, í ruslapokum og í neonlituðum leggings, með legghlífar og málaðar eins og við værum geðveikar. Í kvöld er svo afmælispartýið stóra! Við fengum að halda afmælið í fjárhúshlöðunni þar sem er aðalpartýpleisið og við buðum öllum skólanum (efast um að allir komi). En útaf veðri, þá verða örugglega fleiri en ætluðu sér að mæta. En þetta verður geðveikt, svo er bara barinn á eftir það og þar verður gleðinni haldið áfram!  En já, ég ákvað bara að blogga vegna kennslustundar sem ég er í. Umhverfisfræði, þarf að segja meira?  En ég kveð í bili Auðna verðandi búfræðingur! og Arna 
»
01.12.2007 15:20:09 / audna
Passar skóli og rónalíf saman? Maður hefði haldið ekki, en hérna hefur það virkað fínt! Ég tek bara upp setninguna frá Þórönnu bekkjarsystur minni "Ég elska rónalíf"  Vitiði, ég er að byrja að fá annareinkunnir núna og ég er klárlega að rúlla þessum skóla upp. Er búin að fá núna 8,5 í Annað búfé og 9,46 í efnafræði! HVerjum hefði dottið þetta í hug? Mér dettur bara í hug afhverju það er ekki eins og í ME í sumum áföngum, þeir sem fá yfir 8 í annareinkunn fá að sleppa lokaprófinu. Það væri mjög ljúft!  En maður verður víst að klára þessi próf og þá fer að styttast í sveitina! Að sjálfsögðu verður samt tekið eitt lokadjamm með krökkunum í bekknum áður en maður fer heim til að reyna að minnka fráhvarfseinkennin sem við eigum pottþétt eftir að fá í jólafríinu! Annars var heljarinnar djamm tekið á fimmtudaginn. Það var síðasti fimmtudagurinn fyrir próf og það var mjög skemmtilegt. Væri samt sem áður skemmtilegra ef maður myndi eitthvað að ráði eftir kvöldinu, en ég meina, mér var sagt að ég hefði verið mjög skemmtileg og það dugar mér! Einnig vil ég þakka Þórönnu fyrir að hafa verið jafn drukkin og ég, þá leit ég ekki eins asnalega út! Þóranna mín, þú þarft ekki að fá neinn kjánahroll yfir þessu lengur, þetta verður hvort sem er gleymt eftir helgi! Það sagðir þú við mig! Þó það væri alls ekki rétt! En ég veit í alvörunni ekki hvernig það verður að vera í burtu frá þessum krökkum í mánuð eftir að vera að hitta þau liggur við á hverjum einasta degi í allan vetur... Hvernig verður það í alvörunni? Það er ekkert skrýtið þó að maður kvíði fyrir því að fara aftur heim í sveitina og heyra ekkert í ykkur... Djö...við erum orðin klárlega of náinn bekkur! Ekki samt að ég hlakki ekki til að hitta alla vini mína fyrir austan sko... ég hlakka til að hitta ykkur, en það er samt skrýtið að vera búin að vera hér og heyra eiginlega ekki neitt í ykkur og eiga svo að fara að djamma bara með ykkur!  Jæja... þetta er held ég bara að vera komið út í rugl! Hendi kannski inn myndum héðan til að leyfa ykkur að sjá hvað við erum rugluð!  Sé ykkur innan tíðar!  Auðna verðandi búfræðingur!
»
22.10.2007 14:39:23 / audna
Jæja... ég ákvað að gera eitthvað og sá þetta á heimasíðunni hennar Sillu og ákvað að svara þessu líka! Most people can't live without their mobile... so here's a survey about it. Okay? Go Grab your phone! Did you grab it?: jebb 1. What color? Bleikur og hvítur...  2. Who's the first person who comes up under the letter M? Maggi bleiki  3. Who's the last person you called?: Halla 4. Who was your last missed call from? Solveigu 5. Who's the 3rd person who comes up under D? Dekkjahöllin  6. Who's speed dial 2: Torfastaðir 7. Who's the 2nd person who comes up under J? Jón Arngrímsson 8. Who was your last received call from? Heiðrúnu sætu  9. Who's speed dial number 4: Mamma 10. What is your background?:.. Útskriftarmynd af mér  11. How many text messages are currently in your inbox? 33 skilaboð 12. Who's speed dial number 6? Gulli 13. What's the 5th message say in your inbox? Það segir hvað Sólveig gaf Guðfinnu í afmælisgjöf 14. Who's the 1st person who comes up under B? Begga Sveins 15. Who was your last text message from? Guðný 16. Name every person you have text messages from? Guðný, Maggi bleiki, Sólveig, mamma, Heiðrún, Helga, Þóranna, Bergvin, Margrét, Hafþór Valur og Gulli Að vísu voru nokkuð mörg frá tveimur manneskjum inn á innbxinu. 18. Who's the 9th person on your missed calls? Síminn minn fer ekki svo langt aftur 19. What does the 6th message in your Outbox say? Er ekki með svoleiðis... 20. Who is the first name in your Phonebook? Adam 21. Who is the last name in your Phonebook?: Þórveig 22. Do you have a camera phone? Jebb jebb 23. Who is the last person under G: Gummi litli  24. What does your first text message say? Það eru fleiri en 20 englar í veröldinni. 10 sofa rólegi á skýjunum, 9 spila á hörpu og einn er akkúrat ð lesa þetta sms. Sendu þetta á 10 vini þína og ef þú færð til baka 5 kemur einhver þér á óvart. Ekki slíta keðjuna, hún virkar. Eigðu góðan og hugljúfan dag.
»
18.10.2007 17:49:25 / audna
Ég er að segja ykkur það að ég er klárlega að standa mig í þessu bloggdæmi hérna! er það ekki annars?  Allavega, núna erum við búin að taka áfangapróf hérna og ég náði þeim öllum! Ég var samt sérstaklega ánægð með einkunina í efnafræði, en ég fékk 9,3 í henni. Veit samt ekki alveg hvernig ég fór að því en það tókst!  Annars er ég bara í skólanum eða á djamminu!  Ætla samt að taka þennan fimmtudag rólegan, fimmtudagarnir hafa verið aðal djammdagarnir hér og kominn tími á að taka því rólega. Jæja, ég er ein í kotinu fram á mánudag og það er svolítið skrýtið. Maður getur hagað sér nákvæmlega eins og maður vill og gerir akkúrat það sem maður vill. Núna er nákvæmlega enginn vilji fyrir hendi á að byrja að læra fyrir næstu viku, en það kemur að því að ég verð að byrja.  Jæja... ég ætla að láta þetta vera gott í bili Sólveig mín, þú færð verðlaun um leið og ég fæ hilluna!  Læt vita af mér aftur síðar! Kv. Auðna tilvonandi búfræðingur!
»
30.09.2007 19:56:08 / audna
ÉG hef nú ekki frá mörgu að segja héðan. Það eru bara fyllerí á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum og svo náttúrulega öðrum dögum ef eitthvað er í gangi! Svo er bara mjög skemmtilegt í tímum, sérstaklega þegar það var eitthvað að gerast kvöldið áður. Þá er ég sú eina sem er ekki þunn og þá er ég að vísu ekki mjög vinsæl vegna þessa kosts sem ég hef. Svo fór ég til Egilsstaða síðustu helgi til að smala og komast á ball þar. Geðveikt gaman að smala og svona. Ballið hefði mátt vera skemmtilegra þó að hljómsveitin hefði verið mjög góð!  Aðalástæða þessa bloggs er sú að ég nenni ekki að læra heima þó að ég þurfi þess verulega. Svo væri líka mjög gaman að sjá hver verður nr. 10000 á síðuna. Það væri svo típískt að það verði ég sjálf en endilega látið mig vita hver það verður!  Blogga aftur síðar.. Auðna
»
10.09.2007 19:49:34 / audna
Jæja... Þar sem sumarið er búið og ég nennti ekki að blogga um það, þá ætla ég ekki að gera það núna þegar haustið er að byrja!  Sumarið í stuttu máli, þá var það geðveikt skemmtilegt. Fór til Rhodos (grísk eyja), djammaði eiginlega allar helgar þetta sumarið, fór á Þjóðhátíð í eyjum í besta veðri í heimi og vann að sjálfsögðu, ekki skemmtileg vinna, en vinna var það þó. Þá er komið að nútíðinni. Haustið er að ganga í garð og ég þurfti að yfirgefa austurlandið fagra. Ég er komin á HVanneyri í Landbúnaðarháskóla Íslands. Er búin að vera í skólanum í tvo daga því að ég sé búin að vera hérna yfir helgi og skemmtilegheit. Er svona að kynnast fólki, náði að fara á barinn á fimmtudagskvöldið og á ball á föstudagskvöldið. Ég lá hinsvegar bara heima á laugardaginn og hafði það gott. Ákvað að segja aðeins frá mér því ég virðist sjaldan hitta fólk á msn og svoleiðis. Ég skal reyna að halda þessu áfram núna... Látið vita af ykkur! Auðna
»
21.05.2007 23:49:23 / audna
Ég ætla að leyfa mér að stela þessu af síðunni hennar
Hrafnkötlu! 
A : You like to drink.
B : Everyone wants you.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E : Damn good kisser.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You have a very good personality and looks.
I : You Are Great in bed.
J : People Adore YOU!
K : You're wild and crazy.
L : Everyone loves you.
M : best kisser ever.
N : You like to drink.
O : Awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgmental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : Best g/f b/f anyone could ever ask for.
Z : Always ready.
Við skulum tékka hvernig þetta kemur út fyrir
mig!
S : Easy to fall in love
with.
I : You Are Great in bed
G : You never let people tell you what
to do.
R : Fuckin crazy.
I : You Are Great in bed
D : You like to drink.
U : You really like to
chill.
R : Fuckin crazy.
hehe... mér fannst þetta skemmtileg lesning 
En
annars var þessi helgi snilldin ein! 
Ég
útskrifaðist frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og hélt
útskriftarveislu í tungubúð sem gekk mjög vel! 
Svo
var náttúrulega haldið á útskriftarball sem ég þurfti ekki að borga
mig inn á 
Margt skemmtilegt gerðist á þessu balli eins og
flestir eru sjálfsagt búnir að heyra um... 
En svo var bara haldið í sauðburð daginn eftir og
ég ætla mér að vera þar þangað til á fimmtudag eða svo... Þá
ætla ég að gera mig tilbúna fyrir Rhodos!!! Shit hvað ég hlakka
til...
Ég ætla að kaupa útskriftargjöf handa Biddu minni
og svo ætla ég að kaupa afmælisgjafir handa þeim sem ég man eftir
að eiga afmæli í sumar! 
En ég ætla að reyna að hugsa um kindurnar
mínar!
See ya later beibs 
Auðna kveður 
»
13.05.2007 00:44:58 / audna
Ég man ekki einu sinni hvenær ég bloggaði síðast um eitthvað
merkilegt í lífi mínu....
Ég er allavega búin með prófin og vonandi náði ég öllu því ef ég
náði öllu þá þarf ég ekki að koma inn í Menntaskólann aftur nema í
kurteisisheimsókn! 
Útskrift er í augsýn og ég verð virkilega glöð ef ég heyri ekki
í Þorbirni á mánudaginn því þá gekk þetta allt saman vel

Sumarið er að fara að byrja og það þýðir bara djamm, djamm og
aftur djamm með smá vinnuívafi 
Útlandaferðin einnig alveg að verða að veruleika, ég trúi ekki
að ég sé að fara til útlanda án þess að hafa einhvern fullorðinn
með... hvað gerist ef við villumst? Endum í einhverju dimmu
húsasundi? annars verðum við nokkrar saman og buffum alla sem
eru með eitthvað bögg við okkur! 
Annars er bara sauðburður á fullu, hann gengur svona upp og
niður því ýmist er allt í klessu eða allt í himnalagi 
Jæja... Svo ætlast ég til að hitta alla á balli 19. maí í
Valaskjálf!
Auðna kveður í bili
»
12.04.2007 08:44:23 / audna
Ég hef verið að spá í tilganginum með bloggi....
Þegar maður er að blogga, þá er maður bara að segja frá því sem
er að gerast í lífinu, koma með pælingar og jafnvel koma með
staðreyndir úr umhverfi manns.
En þegar maður hittir vini sína, er maður þá ekki alltaf að
segja þeim frá öllu þessu? Skiptir einhverju máli hvort að maður
bloggar í rauninni eða ekki? Það fá allir að vita af þessu hvort
sem er, og þótt að þeir fái ekki að vita þetta, er það eitthvað
þeirra að vita þá?
Ég fór bara að spá í þessu því það er alltaf verið að segja
manni að blogga, en samt er maður kannski alltaf að hitta þetta
fólk...
Jæja...
en svo fór ég að spá... Þó maður sé að blogga, þá einhvern
veginn dettur allt útúr hausnum á manni akkúrat þegar maður ætlar
að fara að segja frá því. Miklu betra væri ef maður myndi
bara styrkja vinaböndin og bókstaflega tala við alla sem maður vill
deila þessu með! 
Einhver sammála?
Allavega... ég nenni allavega ekki að segja frá lífi mínu
núna... vildi bara koma þessu frá mér
Auðna kveður.
»
27.03.2007 08:26:48 / audna
Á meðan ég hef ekki verið að blogga, þá hef ég orðið
frænka...
Eignaðist litla og sæta frænku...
Svo eignaðist ég líka frænda, sem er kallaður Sigurjón
Torfi...
Frænkan hefur að vísu ekki fengið nafn en foreldrar hennar segja
að hún sé fullkomin og eru ægilega happy, happy, joy, joy yfir
henni.
Þar sem að ég kann ekkert á tölvur eða net, þá kann ég ekki að
setja inn myndir af henni... Þið verðið bara að hitta mig á msn ef
þið viljið sjá myndir
Jæja, ég ætlaði að reyna að setja inn mynd áðan, en við það
hvarf allt sem ég var búin að skrifa og ég bara nenni alls ekki að
skrifa það allt aftur... það er hinsvegar bara verst fyrir ykkur!

Ég ætla bara að reyna að gera eitthvað merkilegt í
landafræði...
Við sjáumst bara síðar
Gerið mér þann greiða að sýna einhver spor eftir ykkur... 
Auðna kveður
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 12 nóvember
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 18713
|